Íslandsbleikja eykur umsvifin

Deila:

Íslandsbleikja hefur á síðasta ári verið að bæta við eldiskerum í laxeldi sínu í Öxarfirði og bleikjueldi á Stað við Grindavík. Stækkunin er um 30% í rúmmáli og mun framleiðslan aukast í samræmi við það árið 2018. Auk þess mun bleikjuvinnsla félagsins í Grindavík verða flutt í nýtt fiskvinnsluhús í Sandgerði í haust. Þar eru aðstæður góðar og meiri möguleikar á aukinni framleiðslu.

„Hátt gengi krónunnar hefur gert okkur nokkuð erfitt fyrir. Allur kostnaður er fallinn til í íslenskum krónum og þegar færri krónur skila sér verður minna eftir. Við höfum engu að síður verið að auka framleiðsluna hjá okkur, en það er ekki alveg hlaupið að því að gera skammtíma breytingar á rekstri í fiskeldi. Þetta er ferli sem tekur tvö ár og eftir að eldi er hafi er framhaldið mikið til ákveðið,“ segir Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Íslandsbleikju í samtali við kvotinn.is

„Við framleiddum um 3.600 til 3.700 tonn af bleikju og laxi á síðasta ári, sem er 500 tonnum meira en árið 2015. Veltan á síðasta ári var tæpir þrír milljarðar króna. Þetta tosast aðeins upp og vonandi verður svipuð aukning á þessu ári,“ segir hann.

Um 70% af bleikjunni fer á markað í Ameríku og hitt til Evrópu. Allur laxinn er seldur til Bandaríkjanna. „Verð á bleikjunni er mjög stöðugt í erlendri mynt og erfitt að hnika því upp á við. Við höfum einnig verið með langtíma samninga í laxinum og hefur verðið á honum eins og bleikjunni verið alveg ágætt. Gengið þyrfti bara að vera hagstæðara.“

Íslandsbleikja er með laxeldið í Öxarfirði og eru um 1.000 tonn framleidd þar á ári. Bleikjueldið er á Vatnsleysuströnd og á Stað við Grindavík. Tvær seiðastöðvar eru í Ölfusi. Laxaslátrunin er í Öxarfirði og bleikjunni er slátrað og hún unnin  í Grindavík þar til í haust.

„Ákveðið hefur verið að færa vinnsluna á bleikjunni frá  Grindavík til Sandgerðis í nýlegt mjög vandað fiskvinnsluhús, sem áður var í eigu fyrirtækis sem hét Marmeti. Við stóðum frammi fyrir miklum endurbótum á því húsnæði sem við erum í í Grindavík samfara aukningu í eldinu.  Við mátum það betri kost að flytja starfsemina yfir í þetta hús í Sandgerði sem gefur okkur möguleika á að þróa vinnsluna enn frekar hjá okkur auk þess sem þar er mjög góður lausfrystir sem er  hjartað í svona húsum. Við teljum að þessi flutningur sé  betri lausn fyrir okkur til framtíðar auk þess sem við höfum ekki möguleika á að stöðva framleiðsluna vegna breytinga vegna skuldbindinga okkar varðandi afhendingar á afurðum allt árið um kring.  Þar má ekkert  stoppa. Það verður svo mjög spennandi að byggja upp nýja vinnslu með okkar fólki, sem við ætlum að hafa af fullkomnustu gerð. Við gerum ráð fyrir því að hefja vinnslu þar í haust.

Um það bil 20 manns vinna við vinnsluna í Grindavík og við bjóðum þeim að koma með okkur. Þetta 20 mínútna akstur á milli og við lítum á þetta sem sama atvinnusvæði og munum flytja fólkið á milli á launum. Við erum með gott starfsfólk, sem margt hefur verið lengi hjá okkur og kann vel við verka. Við viljum gjarnan hafa það með okkur í þessari uppbyggingu sem framundan er,“ segir Jón Kjartan Jónsson.
Efri myndin sýnir fiskeldisstöð Íslandsbleikju á Stað við Grindavík.

Fiskverkunarhúsið í Samgerði sem Samherji mun flytja bleikjuvinnslu sína í með haustinu. Áður var fyrirtækið Marmeti þar til húsa. Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

Fiskverkunarhúsið í Sandgerði sem Samherji mun flytja bleikjuvinnslu sína í með haustinu. Áður var fyrirtækið Marmeti þar til húsa. Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

 

Deila: