Íslenskur fiskur selur sig ekki sjálfur

105
Deila:

„Almennt séð, gekk okkur ótrúlega vel í heimsfaraldrinum. Um þessar mundir eru markaðir að taka við sér, eftirspurnin er góð og verðin yfirleitt ágæt,“ segir Gústaf Baldvinsson framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood og Seagold en þessi tvö félög sjá um að selja afurðir Samherja og fleiri fyrirtækja um víða veröld.

Margar brekkur í heimsfaraldrinum

„Bretland og Frakkland eru og hafa verið okkar helstu viðskiptalönd. Bandaríkin eru mjög mikilvæg og reyndar öll Evrópa. Löndin sem kaupa af okkur fisk eru ansi mörg þannig að allur heimurinn er undir. Strax í upphafi Covid-19 var ákveðið að gera skipin út af fullum krafti og þar með vinnsluhúsin. Það tókst með miklum ágætum, auðvitað með samstilltu átaki allra starfsmanna Samherja. Samgöngur voru oft á tíðum erfiðar í faraldrinum en okkur tókst að koma afurðum til viðskiptavina okkar á umsömdum tímum, sem er stórt atriði. Brekkurnar voru sem sagt nokkrar, ég viðurkenni það alveg. Samherjahópurinn er magnaður og á tímum heimsfaraldurs er slíkt ómetanlegt.“

Stórmarkaðir helstu kaupendur

„Stórmarkaðir eru okkar helstu viðskiptavinir, sem kom sér vel í faraldrinum vegna þess að fólk þarf alltaf að kaupa mat og þeir voru meira og minna opnir. Veitingahús þurftu hins vegar að skella í lás og þar með þurftu þau ekkert hráefni. Vissulega eru veitingahús nokkuð stórir kaupendur hjá okkur á sumum svæðum, en það eru sem sagt stórmarkaðir sem eru langstærstir og það er líklega okkar gæfa varðandi sölu afurða í heimsfaraldrinum.“

Tókst að afhenda á réttum tíma

Hanna D. Hermannsdóttir sér um flutningamál afurða hjá Samherja.

Gústaf segir að persónulegir fundir séu mikilvægir í allri sölustarfsemi, slíkir fundir komi ekki í stað fjarfunda eins og grípa þurfti til.

„Auðvitað reyndi á alla innviði, það er ábyggilegt. Afhendingaröryggi er stór þáttur í þessu öllu saman og kaupendurnir gátu treyst því að fá umbeðnar pantanir á réttum tíma, þrátt fyrir allar þær takmarkanir sem voru í gildi. Það tekur langan tíma að byggja upp traust og gott viðskiptasamband en því er líka hægt að glata á augabragði.“

Deila: