Jafn og góður afli

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Seyðisfjarðar í gærmorgun að lokinni veiðiferð og var aflinn rúmlega 82 tonn. Uppistaða aflans var þorskur og karfi. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að vel hafi gengið að veiða en veðrið hafi hins vegar verið leiðinlegt.

„Þorskinn fengum við á Fætinum en karfann í Hornafjarðardýpi og Öræfagrunni. Það hefur verið góður afli það sem af er árinu en í febrúar og það sem af er marsmánuði hafa verið bölvaðar brælur. Menn eru orðnir hálfþreyttir á veðurlaginu. Það hefur verið meiri fiskur hérna fyrir austan en verið hefur á þessum árstíma síðustu tvö árin. Síðustu tvö ár þurftum við að fara vestur á Selvogsbanka til að fá þorsk í mars- og aprílmánuði en nú er staðan allt önnur,“ segir Þórhallur í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.
Til stóð að Gullver héldi til veiða á ný í gærkvöldi en vegna veðurs var brottför frestað. Gert er ráð fyrir að skipið leggi úr höfn í kvöld.

Deila: