Jákvæð þróun í áætlunarsiglingum

Deila:


„Ég er ánægður með frammistöðu okkar í upphafi árs sem sýnir að okkur hefur tekist að bæta árangurinn í gámasiglingum samanborið við óásættanlega niðurstöðu á sama ársfjórðungi í fyrra. Ytra umhverfið alþjóðlega er áfram hagstætt fyrir flutningageirann en á sama tíma eru rekstraraðstæður áfram krefjandi,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Einskips um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi. Niðurstaðan er kynnt á heimasíðu félagsins.

Vilhelm Már Þorsteinsson.


„EBITDA nam 30,4 milljónum evra á fjórðungnum og jókst um 86% frá síðasta ári sem að mestu má rekja til magnaukningar í áætlunarsiglingum, bættrar afkomu í gámasiglingum auk góðs árangurs í alþjóðlegri flutningsmiðlun. Það er mikilvægt að hafa í huga að við vorum ekki ánægð með afkomuna á sama ársfjórðungi síðasta árs sem var óviðunandi. Áætlunarsiglingar Eimskips krefjast mikillar fjárbindingar í formi skipa, búnaðar og tækja. Það er mikilvægt að afkoma félagsins standi undir fjárfestingu í nýjum umhverfisvænni tækjum og geri okkur kleift að ráðast í verkefni sem miða að því að þróa þjónustu okkar og rekstur í takt við alþjóðlega þróun í sjálfbærni, stafrænum lausnum og sjálfvirkni. Við njótum góðs af lægri kostnaðargrunni eftir samþættingu og hagræðingaraðgerðir undanfarinna ára, ríkri áherslu á virka tekjustýringu ásamt öguðum verkferlum og stöðugum mælingum á rekstrarárangri.
Það var góður vöxtur í magni á Íslandi samanborið við fyrsta fjórðung síðasta árs og magnið í frystiflutningum í Noregi hélst stöðugt þrátt fyrir að siglingum til Murmansk hafi verið hætt frá og með febrúar. Það er áfram sterk eftirspurn eftir Trans-Atlantic flutningum og hefur siglingaleiðin vestur um haf verið fullbókuð og auk þess hefur mikil aukning verið í magni austurleiðina. Til að mæta umframeftirspurn höfum við ákveðið að auka afkastagetu á Norður-Ameríku leiðinni með því að færa skip tímabundið frá Noregi þar sem vertíðin er rólegri yfir sumarið.
Í alþjóðlegu flutningsmiðluninni okkar finnum við fyrir skorti á gámum og takmarkaðri afkastagetu hjá stóru skipafélögunum en þrátt fyrir það er afkoman góð.
Við sjáum viss stöðugleikamerki í alþjóðlegum flutningaverðum og leiguverðum skipa en hins vegar er enn ójafnvægi og stíflur í höfnum sem hefur áhrif á markaðinn og staðan er viðkvæm. Alþjóðlegar efnahagshorfur einkennast af miklum sveiflum og spennu á alþjóðavettvangi með áskorunum bæði á eftirspurnar- og framboðshliðinni.
Við erum almennt bjartsýn fyrir komandi mánuði og Eimskip er vel staðsett á sínum lykilmarkaði í Norður-Atlantshafi þar sem við þjónum heimamörkuðum sem eru drifnir áfram af inn- og útflutningi auk sérhæfingar í frystiflutningum í okkar alþjóðlegu flutningsmiðlun.“

Deila: