Jón á Birtu aflahæstur
Aflahæstur á strandveiðum 2019 var Jón Ingvar Hilmarsson á Birtu SU 36 með 52,4 tonn i 46 róðrum. Jón gerir út frá Djúpavogi.
Í stuttu spjalli við Jón Ingvar á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda, sagði hann strandveiðarnar í ár hafa verið þær leiðinlegustu frá upphafi. Bræla nánast upp á hvern einasta dag en þær færðu manni nú sjaldnast mikla ánægju. Jón sagðist ánægður breytingar sem gerðar hafa verið á kerfinu. Nauðsynlegt væri þó að þróa það áfram, til dæmis að allir dagar mánaðarins væru strandveiðidagar til að auðvelda mönnum að ná 12 dögum í hverjum mánuði. Aðrar breytingar þyrfti í raun ekki að gera.