Kap VE á áfangastað eftir siglingu í 74 daga!

Deila:

Kap VE á áfangastað eftir siglingu í 74 daga!Kap VE-41 (áður Gullberg VE) kom til Busan í Suður-Kóreu um helgina eftir nær tveggja og hálfs mánaðar siglingu frá Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin seldi skipið til Rússlands.

Kap verður gerð út frá Vladivostok í Rússlandi til uppsjávarveiða í Othotskhafi úti fyrir Kampsjatka. Nýir eigendur byrja hins vegar á því að taka skipið í slipp í Suður-Kóreu og þangað er Kap nú komin.

Skipinu var siglt frá Vestmannaeyjum 12. apríl og Guðni Ingvar Guðnason hefur fylgst með ferðum þess allan tímann á marinetraffic.com.

Kap busan

 

Kap fór frá Eyjum til Kanaríeyja, þaðan áfram til Cape Town í Suður-Afríku, Singapúr og í nótt var áfangastaðnum náð, Busan í Suður-Afríku eftir siglingu í 74 daga!

Stytta hefði mátt ferðina um tvær til þrjár vikur með því að fara um Súesskurð í stað þess að sigla suður fyrir Góðrarvonahöfða. Rússnesku útgerðarmennirnir gáfu þá skýringu í Eyjum að það væri svo dýrt að fara um Súesskurðinn að þeir vildu frekar fara lengri leið og spara þannig fjármuni.

Gert er ráð fyrir hálfs árs samfelldu úthaldi skipsins á veiðum við Kampstjatka og að landað sé í verksmiðjuskip eða í höfnum.

Að því sögðu er Kap þar með úr sögu Vinnslustöðvarinnar með þökkum fyrir hið liðna.

 

Deila: