Kjör tveggja stjórnarmanna á hluthafafundi HB Granda

Deila:

Hluthafafundur HB Granda hf. verður haldinn föstudaginn 27. júlí 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hefst hann klukkan 15:00. Fundurinn fer fram á íslensku.

Dagskrá

  1. Kjör tveggja stjórnarmanna
  2. Önnur mál

Aðrar upplýsingar

Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann gerir um það skriflega eða rafræna kröfu til félagsstjórnar á netfangið hluthafafundur@hbgrandi.is með það löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. Þannig skulu óskir hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 17. júlí 2018, þ.e. 10 dögum fyrir fundinn.

Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé.  Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.

Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta:

  1. a) veitt öðrum skriflegt umboð
  2. b) greitt atkvæði skriflega

Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig þeir skuli bera sig að.  Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu og form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins.

Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr. hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega, minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Framboðum skal skila á skrifstofu HB Granda, Norðurgarði 1 eða á netfangið hluthafafundur@hbgrandi.is. Tilkynnt verður um framkomin framboð tveimur dögum fyrir hluthafafundinn.

Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn.

Allar nánari upplýsingar um fundinn má finna hér.

 

Deila: