Kveð starfið með miklu þakklæti

Deila:

„Ég hef ákveðið að tjá mig ekki um forstjóraskipti og starfslok mín hjá HB Granda. Það hefur verið gengið frá starfslokum mínum hjá félaginu og því nauðsynlegt að horfa fram á veginn. Mig langar þó að taka eftirfarandi fram,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, fyrrum forstjóri HB Granda í yfirlýsingu, sem hann hefur sent frá sér. Þar segir hann ennfremur:

„Þó ég hafi haft fullan hug á að starfa áfram hjá HB Granda kveð ég starfið með miklu þakklæti. Það hafa verið forréttindi að fá að taka þátt í og vinna að þeim mikilvægu breytingum sem félagið hefur gengið í gegnum á undanförnum árum.

Mína vegferð innan félagsins má rekja 18 ár aftur í tímann til ársins 2000 þegar ég var ráðinn sem skrifstofustjóri hjá Tanga hf. á Vopnafirði sem síðar sameinaðist HB Granda hf. Síðan þá hef ég tekið þátt í uppbyggingu félagsins í gegnum miklar breytingar, hæðir og lægðir.

Á þessum tímamótum eru mér efst í huga þau forréttindi að hafa fengið að vinna með því frábæra fólki sem ég hef kynnst í starfi mínu innan félagsins og utan.

Með ofangreint í huga kveð ég starfið fullur þakklætis og óska starfsfólki HB Granda og félaginu sjálfu alls hins besta.“

 

Deila: