Lagt er til að 48 dagar á strandveiðum verði tryggðir

98
Deila:

Fram er komið á Alþingi frumvarp til laga sem er ætlað að tryggja að strandveiðar verði í 48 daga í sumar. Lagt er til að það verði gert með því að sjávarútvegsráðherra flytji veiðiheimildir frá næsta fiskveiðiári allt að 20% af þorskveiðiheimildum almenna byggðakvótakerfisins, auk skel- og rækjuuppbóta fiskveiðiársins til þessa fiskveiðiárs. Þrátt fyrir þennan tilflutning skal ekki skerða veiðiheimildir dagróðrabáta á næsta fiskveiðiári.

Fyrsti flutningsmaður er Lilja Rafney Magnúsdóttir, en hún tilkynnti um þessa fyrirætlan sína í ræðu á eldhúsdeginum sem var á mánudaginn. Með henni flytja þingmálið Ari Trausti Guðmundsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé og Halla Signý Kristjánsdóttir.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að þessari aðgerð sé fyrst og fremst ætlað að vinna gegn atvinnuleysi í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru sem hefur bitnað á vinnandi fólki hringinn í kringum landið. „Þau sem stunda veiðar innan strandveiðikerfisins hafa sum getað framfleytt sér á annarri vinnu þá mánuði sem strandveiðar eru ekki stundaðar. Með
auknu atvinnuleysi skiptir enn meira máli að fyrirsjáanleiki og vissa sé til staðar í strandveiðum til að tryggja afkomu einstaklinga og fjölskyldna. Markmið aðgerðarinnar er að efla atvinnu og tryggja afkomu fólks vítt og breitt um landið.“

Á síðasta ári voru veiðarnar stöðvaðar 19. ágúst en þá voru búnar þær veiðiheimildir sem ætlaðar eru til strandveiða. Í ár eru 10.000 af þorski til strandveiða. Í greinargerðinni segir að ólíklegt sé að þessi 10.000 tonn muni tryggja veiðar til ágústloka. Afli fyrstu sjö dagana hafi aukist um 37% frá sömu viðmiðun árið 2020 og allt útlit er fyrir að um 700 bátar stundi strandveiðar í ár. Þykir því nauðsynlegt að heimila viðbót til þess að tryggja að unnt verði að róa alla 12 daga í ágúst sem heimilt er.
Frétt af bb.is

. Lagt er til að við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða sem orðast svo:

„Ráðherra skal tryggja 48 daga á strandveiðitímabilinu 2021. Hafi ráðherra fullnýtt heimildir innan 5,3% kerfisins, sbr. 3. mgr. 8. gr. laganna, er ráðherra heimilt að flytja til strandveiða allt að 20% af þorskveiðiheimildum almenna byggðakvótakerfisins, sbr. 10. gr. laganna, auk skel- og rækjuuppbóta fiskveiðiársins 2021/2022, sbr. 11. gr. laganna. 

Ráðherra skal tryggja að flutningsheimild, sbr. 1. mgr., skerði ekki veiðiheimildir dagróðrabáta á næsta fiskveiðiári.“ 

„Frumvarpið er lagt fram af þingmönnum stjórnarflokkanna VG og Framsókn.  Það ætti að tryggja að málið verði tekið á dagskrá og samþykkt sem lög fyrir þinglok.  Með því yrði tryggt að strandveiðar standi út ágúst, en ljúki ekki mánuði fyrr eins og allt stefnir í,“ segir í frétt á heimasíðu Landssambands smá bátaeigenda.  

Sjá frumvarpið

Deila: