Laxar Fiskeldi fá aukið rekstrarleyfi til seiðaeldis

238
Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Löxum Fiskeldi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á Fiskalóni í Ölfusi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 13. nóvember 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 11. desember 2020.

Laxar Fiskeldi sótti um breytingu á rekstrarleyfi fyrir 100 tonna lífmassa seiðaeldi á laxi á Fiskalóni í Ölfusi. Fyrirtækið var áður með rekstrarleyfi fyrir 20 tonna framleiðslu vegna klakfisks- og seiðaeldis á laxi og bleikju. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 12. nóvember 2019. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Laxa Fiskeldis ehf. FE-1158 á Fiskalóni í Ölfusi, en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Matvælastofnun hefur einnig veitt Löxum Fiskeldi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis á Bakka í Ölfusi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi   þann 26. október 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 23. nóvember 2020.

Laxar Fiskeldi sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 100 tonna lífmassa klakfisks- og seiðaeldi á laxi og bleikju á Bakka í Ölfusi. Fyrirtækið var áður með rekstrarleyfi fyrir 20 tonna klakfisks- og seiðaeldis á laxi og bleikju. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 15. febrúar 2019. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Laxa Fiskeldis ehf. FE-1157 á Bakka í Ölfusi, en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins er ekki matsskyld skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

 

 

 

 

 

 

Deila: