Leggja til rækjuveiðar í Djúpinu og Arnarfirði

Deila:

Hafrannsóknastofnun leggur til að leyfðar verði veiðar á 197 tonnum af rækju í Arnarfirði og 568 tonnum í Ísafjarðardjúpi á vertíðinni 2019/2020. Tillagan er byggð á niðurstöðum könnunar á ástandi innfjarðarrækjustofna sem fram fór dagana 1.-11. Október.

Ástand rækjustofna í Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda og Öxarfirði var ekki kannað. Ráðgjöf stofnunarinnar hefur undanfarin ár verið að ráðleggja að engar veiðar séu stundaðar á þessum svæðum vegna slæms ástands stofnanna.

Stofnvísitala rækju í Arnarfirði var nálægt sögulegu lágmarki en yfir skilgreindum varúðarmörkum. Rækjan í Arnarfirði var smærri en undanfarin ár. Mikið var af þorsk- og ýsuseiðum í Arnarfirði og mældist meira af þorski en undanfarin þrjú ár.

Stofnvísitala rækju í Ísafjarðardjúpi var undir meðallagi en yfir skilgreindum varúðarmörkum. Útbreiðsla rækjunnar var að miklu leyti takmörkuð við svæðið innst í Ísafjarðardjúpi. Nýliðunarvísitala rækju var langt undir meðallagi árin 2016–2019. Vísitala þorsks hefur farið lækkandi frá árinu 2012 en magn þorsks var töluvert meira í október 2019 en undanfarin þrjú ár. Vísitala ýsu hefur haldist há frá 2004. Mikið var af ýsuseiðum á svæðinu í október 2019.

 

Deila: