Leita verðmætum í flaki SS Minden

Deila:

Varðskipið Þór og TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, fylgdust á föstudag með vinnu rannsóknarskipsins Seabed Worker sem kom inn í efnahagslögsöguna á fimmtudagsmorgun. Skipið mun næstu daga leita að verðmætum í flaki þýska skipsins SS Minden sem sökk 24. september 1939 um 120 sjómílur suðaustur af Kötlutanga.

Umhverfisráðuneytið veitti Advanced Marine Services undanþágu á gildistíma starfsleyfis sem fyrirtækið hafði áður fengið frá Umhverfisstofnun og gilti til 1. maí 2018. Varðskipið Þór er farið af svæðinu en Landhelgisgæsla Íslands mun áfram fylgjast með framkvæmdunum næstu daga en þær hófust formlega á sjöunda tímanum á föstudag.

Frá upphafi framkvæmda hefur Seabed Worker þrjá sólarhringa til að freista þess að ná verðmætum úr flaki SS Minden.

 

Deila: