Ljúffengur þorskur með hnetum

675
Deila:

Sumum finnst fiskur dýr, en ekki má gleyma því að þegar flök eða hnakkar eru keyptir ferskir eða saltaðir, er nánast engin rýrnun við eldun. Þetta er í raun eins og að kaupa ferskt beinlaust kjöt, eins og kjúklingabringur eða kinda- svína, eða nautavöðva. Og hvað kostar það? Yfirleitt meira en fiskurinn, sem hefur það fram yfir kjötið að auka heilbrigði og gáfur neytenda. Er ekki rétt að leggjast í fiskát og fá sér lostætan þorsk til að njóta lífsins í sumarblíðunni. Ekki vitum við hvort þorskur étur hnetur, en við étum hvort tveggja, hnetur og þorsk. Sannkallaður veislumatur.

Þorskur með pistasíusalsa:

ca 600 gr þorskhnakkar eða þorskflök
salt og pipar
3-4 msk pistasíuhnetur, saxaðar (má líka nota furuhnetur)
3 msk sítrónusafi og rifið hýði af 1/2 sítrónu
1 msk olífuolía
ca 1 dl fersk steinselja, söxuð
1/4 – 1/2 rautt chili, fræhreinsað og fínsaxað

Ofninn hitaður í 220 gráður. Þorskflökin skorin í bita og þeim raðað í smurt eldfast form. Kryddað með salti og pipar. Því næst er blandað saman í skál: pistasíuhnetum, sítrónusafa, sítrónuhýði, steinselju, chili og ólífuolíu. Blöndunni er dreift yfir fiskinn. Bakað í miðjum ofni við 220 gráður í ca 12-15 mínútur eða þar til fiskurinn er fulleldaður. Gætið þess að ofelda hann ekki.
Sætkartöflumús
ca 5-600 gr sætar kartöflur, skrældar og skornar í bita
1-2 kartöflur, skrældar og skornar í bita
1/2 rautt chili, fræhreinsað
safi úr 1/2 límónu (lime)
ca 1 msk smjör
salt og pipar

Kartöflur og sætar kartöflur skrældar og skornar í svipað stóra bita. Þær eru svo settar í pott og vatn rétt látið fljóta yfir. Chili skorið í tvennt langsum, fræin hreinsuð úr og því svo bætt út í pottinn. Til að fá bragðsterkari kartöflumús er hægt að saxa chili smátt. Límónusafa bætt út í pottinn. Suðan látin koma upp og soðið í 15-20 mínútur eða þar til að kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Vatninu helt af og chili (ef það er í heilu) fjarlægt. Kartöflurnar stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með salti, pipar og jafnvel meiri límónusafa. Til að skerpa á hitanum á sætkartöflumúsinni er hún sett í pott og hituð upp við meðalhita, hrært í á meðan.
Sojasmjörsósa

3 msk smjör

1 skarlottulaukur (hægt að nota 1/2 rauðlauk), saxaður fínt

1 hvítlauksrif, saxað fínt

1 tsk rautt chili, saxað fínt

2-3 msk sojasósa

1 msk steinselja, söxuð smátt

Smjör brætt í potti og látið krauma við fremur vægan hita í ca 15 mínútur þannig að smjörið verði brúnt. Froðan veidd af smjörinu. Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram. Njótið!

Það er freistandi að leggja til glas af góðu rauðvíni með svona fínum fiskrétti, en eins og áður velur hver fyrir sig.

 

Deila: