Loðnan er úrvalshráefni til frystingar

Deila:

Barði NK kom til Neskaupstaðar í gær með 1.300 tonn af loðnu sem fer til vinnslu í  fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Á vef Síldarvinnslunnar er rætt við  Runólf Runólfsson skipstjóra sem lét vel af veiðinni.

„Við vorum austur af Glettingi. Aflinn fékkst í þremur holum og var dregið í 3 til 6 ½ tíma. Í fyrsta holinu fengust 470 tonn, 390 í því næsta og 440 í lokaholinu. Þetta er fínasta veiði og í fyrra þurfti að draga miklu lengur til að fá sambærilegan afla. Þetta er fínasta loðna og hentar ábyggilega vel til frystingar. Það eru 40 – 42 stk. í kílóinu. Grænlensku skipin Polar Ammassak og Tasiilaq voru líka að fiska vel og héldu þau til Færeyja með aflann,“ segir Runólfur.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, segir í fréttinni að að loðnufrystingin gangi vel.
„Nú erum við að frysta hænginn á Austur-Evrópumarkað og þetta er úrvalshráefni. Það er ekki verið að frysta á fullum afköstum ennþá en um mánaðamótin verður fiskiðjuverið fullmannað og þá hefst vinnslan af fullum krafti,“ segir Geir Sigurpáll.

Deila: