Losuðu dauðan hval

Deila:

Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs losaði síðastliðinn miðvikudag dauðan hval á Stakksfirði en hann hafði flækst í botnföstu tógi sem talið er líklegt að sé hluti af kræklingaræktunarbúnaði.

Í frásögn Landhelgisgæslunnar segir að hræið hafi verið orðið uppblásið og því hættulegt sjófarendum en staðsetningin er á miðri leið milli milli Njarðvíkur og Hafnarfjarðar. Siglingaleiðin á milli þessara hafna lá í gegnum þetta svæði en síðan var hluta af því úthlutað undir kræklingaeldi.

„Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs var kölluð út og beðin um að halda á staðinn til að losa hvalinn og koma honum út fyrir Stakksfjörð. Áhöfninni gekk vel að losa hræið en í ljós kom að á svæðinu er búnaður, tóg og línur sem hvalir, selir og önnur sjávarspendýr geta hæglega fest í auk þess sem hætta er á að skip og bátar flæki búnaðinn í skrúfuna.
Búnaðurinn virtist ekki lengur vera í notkun. Þegar áhöfn Baldurs hafði lokið við að losa hvalinn var hann tekinn í tog og haldið með hann út fyrir sjávarfallastrauma og honum sleppt á rek um 15 sjómílum norðvestur af Garðskaga.“

Deila: