„Lurkur framundan næstu vikuna“

Deila:

Vetrarlægðirnar hafa haldi áfram að hrella togarasjómenn. Ísfisktogararnir Vestmannaey VE, Bergur VE og Gullver NS lönduðu allir  í vikunni eftir veiðar í sjógangi og leiðindaveðri. Allir voru þeir þrátt fyrir það með góðan afla og Vestmanney fullfermi, samkvæmt frétt á vef Síldarvinnslunnar.

„Við byrjuðum á Ingólfshöfða en athuguðum síðan með ýsu í Meðallandsbugt með litlum árangri. Þá var haldið á Víkina og klárað. Aflinn er stór og góður þorskur og þessa dagana er alltaf að sjást meira af vertíðarfiski. Nú er spáin ekki spennandi. Það verða ríkjandi sunnan- og suðaustanáttir næstu daga og ölduhæð mikil,“ segir Egill Guðni.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að þeir hafi tekið aflann á grunnslóð á Ingólfshöfða og Víkinni. „Það var fínasta veiði en leiðindaveður, haugasjór og ógeð. Það virðist vera helvítis lurkur framundan næstu vikuna en við sjáum til. Það er ekkert nýtt að febrúarveðrið sé leiðinlegt,“ segir Jón í fréttinni.

Veðurfarslega afspyrnu leiðinlegur túr 
Steinþór Hálfdanarson, skipstjóri á Gullveri NS var haldur ekki kátur með veðrið í túrnum en togarinn landaði 75 tonnum á Seyðisfirði á miðvikudag.  Uppistaða aflans var þorskur og ýsa. „Þessi túr var afspyrnu leiðinlegur veðurfarslega og við flúðum undan veðri af einum stað á annan. Við byrjuðum á Hvalbakshallinu og í Berufjarðarál en enduðum í Seyðisfjarðardýpi. Veðrið að undanförnu hefur verið umhleypingasamt og leiðinlegt en ávallt vonar maður að það fari að skána,“ segir Steinþór.

Meðfylgjandi er mynd af Gullveri NS við bryggju á Seyðisfirði. Mynd: Ómar Bogason / svn.is

Deila: