Lýkur löngum starfsferli á sjónum

Deila:

Jónatan Ingi Ásgeirsson, afleysingaskipstjóri á togaranum Stefni ÍS. lét af störfum hjá HG um síðustu áramót eftir áratugalangt starf. Síðustu 12 ár vann hann sem skipstjóri á Stefni en hafði áður starfað sem skipstjóri á rækjutogurnum Andey ÍS 440, Haffari ÍS 430 og á Valnum ÍS 020. Jónatan hefur verið lengi til sjós en hann byrjaði að vinna við það 14 eða 15 ára gamall.
„Hann hefur því marga fjöruna sopið þegar kemur að fisk- og rækjuveiðum. Við þökkum Jónatani fyrir vel unnin störf undanfarna áratugi og óskum honum velfarnaðar og alls hins besta í framtíðinni,“ segir á heimasíðu Hraðfrystihússins Gunnvarar.

Í tilefni af starfslokunum fékk Jóhanes Ingi blómvönd frá fyrirtækinu. Frá vinstri: Valdimar Steinþórsson, útgerðarstjóri, Jónatan Ingi og Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri.  Mynd: HG

Deila: