Makríll og síld til skiptis

Deila:

Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað er þessa dagana ýmist unninn makríll eða síld. Aðfaranótt sunnudags var lokið við að vinna 1.200 tonna síldarfarm úr Berki NK og að því loknu hófst vinna á 370 tonnum af makríl úr Beiti NK. Þá var röðin komin að Margréti EA sem kom með 1.100 tonn, helmingurinn makríll og helmingurinn síld.

Skipið kom við á síldarmiðunum austur af landinu á leið af makrílmiðunum. Þá var röðin komin að Beiti NK á ný en hann kom með 1.200 tonn af síld sem nú er verið að vinna. Bjarni Ólafsson AK er síðan á landleið með tæplega 500 tonn af makríl og Börkur NK kemur í kjölfar hans með tæplega 600.
Á myndinni er Margrét EA að landa 1100 tonnum til vinnslu. Helmingur aflans var makríll og helmingurinn síld. Ljósm. Smári Geirsson

Deila: