Marel eykur kaup á eigin hlutum

85
Deila:

Marel hf. keypti í síðustu viku 1.090.450 eigin hluti að kaupverði 599.519.649 króna. Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 10. mars 2020 og var gerð í samræmi við þágildandi heimild aðalfundar Marel hf. þann 6. mars 2019 til kaupa á eigin bréfum, sem endurnýjuð var á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2020.

Marel hf. átti 14.641.059 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 15.731.509 eigin hluti eða sem nemur 2,04% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 4.957.695 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,64% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 2.536.725.845 kr.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 3,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 11. mars 2020 til og með 4. september 2020.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052.

 

Deila: