Marel kaupir eigin hluti

88
Deila:

Í viku 12 keypti Marel hf. 1.536.921 eigin hluti að kaupverði 750.276.860 krónur á genginu 463 til 525. Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um þann 10. mars 2020 og var gerð í samræmi við þágildandi heimild aðalfundar Marel hf. þann 6. mars 2019 til kaupa á eigin bréfum, sem endurnýjuð var á aðalfundi félagsins þann 18. mars 2020.

Marel hf. átti 11.713.188  eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 13.250.109 eigin hluti eða sem nemur 1,72 % af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 2.476.295 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,32% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 1.220.367.698 kr.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 3,2% af útgefnum hlutum í félaginu. Endurkaupaáætlunin er í gildi á tímabilinu 11. mars 2020 til og með 4. september 2020.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, lög um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052.

 

Deila: