Marel tilkynnir um kaup á eigin hlutum

Deila:

Dagana 30. júlí – 5. ágúst 2022 keypti Marel hf. 24.825 eigin hluti að kaupverði 106.976 evra á Euronext Amsterdam eins og nánar er tilgreint í viðhengi sem og á vefsíðu Marel: marel.com/buyback

Um er að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins á Euronext Amsterdam sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 1. júní 2022 í samræmi við heimild aðalfundar Marel hf. þann 16. mars 2022 til kaupa á eigin bréfum.

Marel hf. átti 18.121.154 eigin hluti fyrir viðskiptin sem nemur 2,35% af útgefnum hlutum í félaginu og átti að þeim loknum 18.145.979 eigin hluti eða sem nemur 2,35% af útgefnum hlutum í félaginu.

Marel hf. hefur keypt samtals 4.000.000 eigin hluti samkvæmt áætlun á Nasdaq Iceland sem nú er lokið og nemur heildarkaupverð þeirra 2.393.302.556 kr. og 441.529 eigin hluti samkvæmt áætluninni á Euronext Amsterdam og nemur heildarkaupverð þeirra EUR 1.955.780.

Endurkaup samkvæmt báðum áætlunum munu nema að hámarki samtals 5.000.000 hlutum, þar af 4.000.000 á Nasdaq Iceland og 1.000.000 á Euronext Amsterdam, eða sem nemur samtals 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Hámarks heildarkaupvirði endurkaupaáætlunar á Euronext Amsterdam nemur allt að 5.590.000 evrum. Endurkaupaáætlunin á Nasdaq Iceland var í gildi frá 1. júní 2022 og lauk endurkaupum þann 1. júlí þegar hámarksfjölda keyptra hluta var náð. Endurkaupaáætlunin á Euronext Amsterdam er í gildi á tímabilinu 2. júní 2022 til og með 2. september 2022.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052 sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 6/2021.

Marel share buy-back 2022 – Transaction history 5 August 2022

Deila: