Mast leggur til rekstrarleyfi fyrir Matorku

172
Deila:

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Matorku ehf. vegna fiskeldis á svæði i6, vestan Grindavíkur. Um er að ræða endurnýjun á rekstrarleyfi án breytinga, 190 tonna hámarkslífmassa á laxi, bleikju og regnbogasilungi til seiðaeldis.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 10. febrúar 2021.

 

Deila: