Mast veitir Háafelli rekstrarleyfi

334
Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Háafelli ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 9. mars 2021 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 6. apríl 2021.

Háafell ehf. sótti um nýtt rekstrarleyfi fyrir 6.800 tonna hámarkslífmassa af laxi í Ísafjarðardjúpi. Fyrirtækið er fyrir með 7.000 tonna hámarkslífmassa í rekstrarleyfi (FE-1106) fyrir sjókvíeldi á regnbogasilung og þorski í Ísafjarðardjúpi. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin 18. júní 2019 og mun rekstrarleyfi FE-1106 falla niður við gildistöku nýs leyfis.

Um er að ræða rekstrarleyfin FE-1171a og FE-1171b fyrir Háafell ehf. sem heimila hámarkslífmassa fyrir samtals 6.800 tonnum af laxi og ófrjóum laxi á hverjum tíma en samkvæmt 10. gr. laga nr. 71/2008 um fiskeldi ber Matvælastofnun að gefa út aðskilin rekstrarleyfi fyrir lax og ófrjóan lax þegar umsóknaraðili hyggst vera með eldi á bæði frjóum og ófrjóum laxi.

Burðarþolsmat Hafrannsóknastofnunar gerir ráð fyrir 30.000 tonna hámarkslífmassa í Ísafjarðardjúpi og áhættumat erfðablöndunar heimilar 12.000 tonna hámarkslífmassa af frjóum laxi á hverjum tíma.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

Deila: