Meiri afli á strandveiðum og hærra verð

Deila:

Tveimur tímabilum af fjórum er nú lokið á strandveiðum.  Samanlagður afli í maí og júní er 9% meiri en á sama tíma í fyrra, 4.847 tonn.  91% aflans er þorskur sem jafngildir að búið er að veiða 40% af þeim 11.100 tonnum sem ætlaður er til strandveiða í ár.  Á síðasta ári var viðmiðun í þorski 9.100 tonn og hlutfallið í lok júní komið í 45% – 4.134 tonn. Frá þessu er greint á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Afli júní í ár var nokkru lakari en í fyrra.  Meðaltalsafli á hvern bát nú 4,5 tonn á móti 5,1 tonn í júní 2018.  Svæði C var eina svæðið þar sem afli í júní jókst milli ára.

Aflahæstur strandveiðibáta nú um mánaðamótin er Héðinn BA 80 með 22,9 tonn. Skipstjóri Jóhannes Héðinsson.

Almennt er gott hljóð í strandveiðimönnum þrátt fyrir að tíðarfarið hafi ekki verið upp á það allra besta.  Aflabrögð þegar friður er eru svipuð og á síðasta ári.

Þá hefur verð á þorski sem seldur er á fiskmörkuðum hækkað um þriðjung milli ára.  Fyrir óslægðan þorsk sem veiddur var á handfæri eru meðalverðin í maí og júní þessi:

 

 

Þorskur 2019 2018
Maí 282 kr/kg 216 kr/kg
Júní 321 kr/kg 240 kr/kg

 

 

Alls hafa 562 bátar nú hafið veiðar á móti 497 í fyrra.

Aflahæstu bátarnir á hverju veiðisvæði eru:

Svæði A               Héðinn BA 80            22,9 tonn       24 róðrar

Svæði D               Sæunn SF 155    22,5 tonn               24 róðrar

Svæði C Birta SU 36                        21,9 tonn               23 róðrar

Svæði B Svala EA 5                          17,9 tonn               22 róðrar

Sjá nánar um strandveiðar.

 

Listi yfir 10 hæstu.pdf á strandveiðum maí – júní, eftir svæðum.

 

Deila: