Meiri verðmæti þrátt fyrir minni afla

132
Deila:

Fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins 2020 var heildarafli íslenskra skipa um 797 þúsund tonn, sem er 3% minni afli en á sama tímabili ársins 2019. Aflasamdráttur skýrist að mestu af samdrætti í kolmunaveiðum samkvæmt frétt Hagstofunnar.

Verðmæti fyrstu sölu afla var tæplega 114,8 milljarðar króna tímabilið janúar til september árið 2020 sem er aukning um 2% miðað við sama tímabil árið 2019. Þar af var verðmæti botnfisktegunda fyrstu þrjá ársfjórðungana rúmir 86 milljarðar króna sem er álíka mikið og var á sama tímabili árið áður.

 

Afli og aflaverðmæti fyrstu þrjá ársfjórðunga 2019-2020
Tonn/Milljónir króna Aflamagn, janúar-september Aflaverðmæti, janúar-september
  2019 2020 % 2019 2020 %
823.540 797.110 112.751 114.753
Samtals 823.540 797.110 -3 112.751 114.753 2
Eftir mánuðum
janúar 46.346 35.741 -23 10.703 7.459 -30
febrúar 73.964 51.494 -30 11.177 11.987 7
mars 118.366 93.298 -21 14.335 14.857 4
apríl 112.947 88.713 -21 13.618 12.729 -7
maí 122.149 125.404 3 13.995 13.044 -7
júní 31.825 62.635 97 7.723 10.926 41
júlí 95.439 89.891 -6 14.222 12.926 -9
ágúst 113.451 130.763 15 14.469 16.952 17
september 109.051 119.171 9 12.510 13.873 11
Eftir fisktegund
Botnfiskur 372.498 353.114 -5 85.868 86.195 0
Þorskur 206.643 212.111 3 52.838 58.002 10
Ýsa 45.396 37.463 -17 11.174 9.142 -18
Ufsi 51.495 39.105 -24 8.034 5.962 -26
Karfi 41.559 39.980 -4 9.248 9.358 1
Annar botnfiskur 27.405 24.455 -11 4.574 3.731 -18
Flatfiskafli 18.435 18.726 2 7.781 8.157 5
Uppsjávarafli 424.698 421.450 -1 17.471 19.338 11
Síld 66.717 82.498 24 2.828 3.953 40
Loðna 0 0 0 0
Kolmunni 229.907 187.432 -18 6.153 5.425 -12
Makríll 128.075 151.520 18 8.491 9.960 17
Annar uppsjávarafli 0 1 0 0
Skel- og krabbadýraafli 7.907 3.819 -52 1.630 1.064 -35
Humar 258 191 -26 266 203 -24
Rækja 2.743 2.703 -1 984 765 -22
Annar skel- og krabbadýrafli 4.906 925 -81 381 95 -75
Annar afli 1 0 0 0
Eftir tegund löndunar
Bein viðskipti 621.678 596.647 -4 59.885 62.520 4
Á fiskmarkað 71.653 67.980 -5 17.605 17.321 -2
Sjófrysting 100.641 91.628 -9 29.310 28.388 -3
Í gáma til útflutnings 18.975 17.274 -9 5.011 4.882 -3
Önnur löndun 10.593 23.582 123 941 1.641 75

 

Deila: