Miklar landanir aðkomuskipa í Neskaupstað

Deila:

Í sumar hafa aðkomutogarar landað oft í Neskaupstað og þegar landaður afli þeirra er tekinn saman reynist hann vera tæplega 1.700 tonn. Togararnir sem um ræðir eru Samherjaskipin Björgúlfur EA og Hjalteyrin EA auk Kaldbaks EA sem gerður er út af Útgerðarfélagi Akureyringa.  Skipin hafa verið að veiðum út af Austfjörðum og hagkvæmt hefur þá verið að landa aflanum eystra. Áður hefur komið fram á heimasíðu Síldarvinnslunnar að Kaldbakur hefur einnig landað sex sinnum á Seyðisfirði nú í ágúst og september.

Björgúlfur EA landaði fjórum sinnum í Neskaupstað í sumar, samtals um 540 tonnum. Hjalteyrin EA landaði þar alls sjö sinnum, samtals 545 tonnum. Þá er Kaldbakur EA að landa í lok síðustu viku í fjórða sinn og er afli hans samtals um 580 tonn.

Að auki hefur Anna EA landað grálúðu í Neskaupstað, einkum í byrjun árs og í sumar. Landanir hennar þar eru tólf hingað til og heildarafli um 1030 tonn. Anna veiðir grálúðuna í net. Drjúgur hluti grálúðuafla Önnu hefur verið unninn í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og þá hefur hluta þess afla sem Anna hefur landað annars staðar verið ekið til Neskaupstaðar þar sem hann hefur verið unninn.

Þá ber einnig að hafa í huga aðkomubáta sem gerðir eru út á línu frá Neskaupstað drjúgan hluta úr ári og skapa mikil umsvif við höfnina.

Fyrir liggur að þessar landanir skipta hafnarsjóð Fjarðabyggðar miklu máli og segir Hákon Ásgrímsson framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna þær afar jákvæðar. „Þessar landanir hafa aukist mikið frá fyrri árum og þær hafa jákvæð áhrif á tekjur hafnarsjóðs, bæði tekjur í formi hafnargjalda og aflagjalda. Ekki má heldur gleyma því að landanirnar eru mikilvægar fyrir fyrirtæki á svæðinu. Ég vil til dæmis í því sambandi nefna fyrirtæki sem sinna löndunarþjónustu og flutningafyrirtæki. Auðvitað fögnum við þessari auknu umferð skipa um hafnirnar, hún er afar jákvæð,“ segir Hákon.
Ljósmynd Hákon Ernuson.

 

Deila: