Mokveiði víða

Deila:

Ísfisktogarinn Akurey AK kom í vikunni til Reykjavíkur með fullfermi, eða 190 tonn, eftir skamman tíma á veiðum. Magnús Kristjánsson, sem var skipstjóri í veiðiferðinni, segir í samtali á heimasíðu HB Granda, að mokveiði hafi verið allan tímann.

,,Við byrjuðum á að fara á Fjöllin í leit að gullkarfa. Þar var mokveiði af karfa en ufsa urðum við ekki varir við,“ segir Magnús en frá Fjallasvæðinu var haldið norður á Vestfjarðamið.

,,Við sigldum yfir Víkurálinn en þar var þá mokveiði á ufsa. Okkur var fyrirlagt að veiða þorsk og hugmyndin var sú að fara í kantinn út af Patreksfirði og vinna sig síðan eftir kantinum norður á Halann. Til að gera langa sögu stutta þá komumst við aldrei langt norður fyrir Patreksfjörð,“ segir Magnús.

,,Það var mokveiði af fallegum þorski allan tímann og meðalvigtin hjá okkur var um fjögur kíló. Það tók okkur innan við 30 tíma á veiðum að ná þeim þorski sem vantaði upp á fullfermi,“ segir Magnús Kristjánsson.

Deila: