Netarallið hafið

125
Deila:

Fyrsti bátur lagði af stað í netarall Hafrannsóknastofnunar þann 25. mars. Næstu daga byrja aðrir bátar einn af öðrum. Netarallið stendur fram í síðari hluta apríl og taka 5 bátar þátt í netarallinu. Magnús SH í Breiðafirði, Saxhamar SH í Faxaflóa, Friðrik Sigurðsson ÁR frá Reykjanesi að Skeiðarárdjúpi, Sigurður Ólafsson SF frá Meðallandsbugt að Hvítingum og Geir ÞH fyrir norðurlandi.

Um 45-60 trossur eru lagðar á hverju svæði og er þeim dreift innan svæða á helstu hrygningarslóðir þorsks. Á hverju svæði er helmingur lagður í fyrirfram ákveðna punkta, svokallaðar fastar stöðvar en hinn helmingurinn er lausar stöðvar sem skipstjórar ákveða hvar skulu lagðar.

Markmið verkefnisins er að safna upplýsingum um lengdar- / þyngdasamsetningu, kynþroska og vöxt eftir aldri á helstu hrygningarsvæðum þorsks. Einnig til að meta árlegt magn kynþroska þorsks sem fæst í þorskanet á hrygningarstöðvum og meta breytingar í gengd hrygningarþorsks á mismunandi svæðum.

 

Deila: