Norskur bátur sekkur

Deila:

Norski fiskibáturinn Fisktrans sökk út af strönd Noregs í fyrradag. Mikill leki kom að honum í slæmu veðri og var áhöfninni bjargað af björgunarþyrlu og hvarf hann í hafið nokkru síðar.

Báturinn var gerður út af útgerðinni Fisktrans í Bodö og var smíðaður árið 1952. Meðfylgjandi mynd og myndband tók  Oddgeir Skjevling skipverji á bátnum  Gularyö, en áhöfn hans fylgdist með Fisktrans sökkva.

http://www.brunsvika.net/images/sm/video/video-1485352041.mp4

 

Deila: