Ný Cleopatra 36 til Fosnavåg í Noregi

147
Deila:

Kjell-Børre Petersen útgerðarmaður fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Kjell-Børre verður sjálfur skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn heitir Nærøybuen. Báturinn er 10.99 metrar á lengd og mælist 11brúttótonn. 

Aðalvél bátsins er af gerðinni Scania D13 650 hestöfl tengd ZF325IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Simrad. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til netaveiða.  Netabúnaður kemur frá Noregi. Lest bátsins rúmar 15 380 lítra fiskikör.  Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking. Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.

Deila: