Nýr bátur til Båtsfjord

Deila:

Nú á dögunum afhenti Bátasmiðjan Trefjar nýjan Cleopatra bát til Båtsfjord í Noregi. Kaupandi bátsins er Jens-Einar Bjørkås Johnsen sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum.

Báturinn hefur hlotið nafnið Bjørkåsbuen.  Bjørkåsbuen er af gerðinni Cleopatra 36, 11 metra langur og mælist 14brúttótonn.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650 hö tengd ZF V-gír.

Báturinn er útbúinn fullkomnum siglingatækjum af gerðinni JRC og Comnav.  Olex skipstjórnartölva er um borð.
Báturinn er einnig útbúin vökvadrifinni hliðarskrúfu sem tengd er sjálfstýringu bátsins.  Báturinn er útbúinn til línuveiða.
Línuspil kemur frá Mustad og annar veiðibúnaður kemur frá Noregi.
Öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking-björgunarbúnaði.

Rými er fyrir 15 stk 380 lítra kör í lest.  Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.
Báturinn hefur þegar hafið veiðar.

 

Deila: