Nýr og öflugur kolmunnapoki

84
Deila:

Hampiðjan hefur hannað nýjan trollpoka til að ráða við stór höl tekin af öflugum og kraftmiklum uppsjávarskipum í miklum sjógangi. Pokinn mun nýtast á uppsjávarveiðum yfir vetrartímann þegar veður eru rysjótt. Frá þessu er greint á heimasíðu Hampiðjunnar og segir þar svo:

Nú fer að líða að því að útgerðaraðilar uppsjávarskipa fari að huga að kolmunnaveiðum eftir áramót.  Vertíðin hófst reyndar strax í janúar síðastliðinn vetur því loðnan var ekki í veiðanlegum mæli.

Nú standa vonir til að meira verði af loðnu og kolmunnavertíðin hefst þá einhverju seinna þegar loðnuveiðum lýkur. Kolmunnakvóti Íslendinga á næsta ári er áætlaður 200 þúsund tonn.

Kolmunnaveiðarnar reyna mjög á veiðarfærin og þá sérstaklega á kolmunnapokana. Það gerist helst á veiðisvæðinu umhverfis Rockall klettinn þar sem íslensku skipin mega veiða á alþjóðlegu hafsvæði. Það er samt hægara sagt en gert að veiða kolmunnann á þessu svæði að vetri til og fram á vor því þarna er oft mikið um djúpar lægðir með stormum og stórsjó. Því þarf að beita þar öflugum og kraftmiklum  skipum til að stunda veiðarnar að gagni. Að sama skapi þurfa veiðarfærin að vera það öflug og sterk að þau þoli átökin sem verða þegar kolmunnapokinn kemur upp í yfirborðið af 600 til 700 metra dýpi og skýst upp úr sjónum af fullum krafti.

Undanfarna mánuði hefur því verið unnið að því að hanna sterkari og öflugri kolmunnapoka fyrir skipin og sem þolir þessi miklu átök.   Afraksturinn  er nýr Rockall kolmunnapoki sem er 86 metrar að lengd, með 48 metra ummáli að ofan og 15 metrar að neðan í pokaendanum. Heildarþyngd pokans er 6,8 tonn þegar hann er nýr og þurr.  Áætlað er að pokinn rúmi útþaninn um 900 tonn af kolmunna.  Innsta lagið í pokanum er úr fléttuðu Utzon næloni í 50 mm heilmöskva og utan um þetta lag koma hlífar úr þreföldu fléttuðu Utzon næloni í 150 mm heilmöskva. Utan um pokann eru þenslugjarðir úr 44 mm Danline kaðli með 1 metra millibili frá pokaenda fram yfir miðjan pokann.

Deila: