Nýtt heilbrigðisvottorð til Kína og ítrekun um nýjar reglur

130
Deila:

Nýtt vottorðaform fyrir fiskafurðir til Kína verður tekið í notkun 1. desember 2021. Fyrir umsóknir um vottorð sem gefa á út frá og með 1. desember 2021 er framleiðendum bent á að hafa samband við inn- og útflutningsdeild til þess að nálgast innskrifanlega útgáfu. Matvælastofnun vill ítreka frétt um tvær nýjar tilskipanir sem taka gildi í Kína 1. janúar 2022. Brýnt er fyrir framleiðendum að kynna sér þau ákvæði reglnanna sem snerta þá, í samráði við sína viðskiptaaðila í Kína. Skoða á mast.is

Deila: