Óákveðinn makríll!

Deila:

,,Það vantar ekkert upp á gönguhraðann hjá makrílnum en hann virðist ekki vera búinn að ákveða hvert hann er að fara. Það hefur komið fyrir að hann gengur hratt í austurátt í eina tvo daga og snýr svo við og gengur vestur eftir að nýju eða í norður. Að þessu sinni byrjuðum við veiðar nyrst í Síldarsmugunni en svo brældi og makríllinn virðist hafa gengið norður fyrir Jan Mayenlínuna.“

Þetta sagði Theódór Þórðarson, skipstjóri á Venusi NS, er rætt var við hann sá heimasíðu Brims skömmu eftir hádegi í gær. Venus var þá á heimleið til Vopnafjarðar með um 610 tonn af makríl og bjóst Theódór við því að koma þangað síðdegis í dag.

,,Það er búin að vera fín veiði þegar þokkalega viðrar og að þessu sinni náðum við þremur holum í fyrradag, fyrst eftir að við komum út, en svo brældi og það er leiðindaveður núna,“ segir Theódór en að hans sögn er greinilega mikið magn af makríl á ferðinni.

,,Mér skilst að það sé fín veiði syðst í Síldarsmugunni núna en þar hafa rússnesku skipin haldið sig síðustu daga. Það var lítið um að vera á þeim slóðum þegar við fórum út en miðað við makrílmagnið mjög víða og að veðrið á að fara að skána eftir morgundaginn, þá líst mér vel á framhaldið,“ segir Theódór Þórðarson.

 

 

Deila: