Ólafur Marteinsson nýr formaður SFS
Ólafur Marteinsson, framkvæmdastjóri Ramma hf. á Siglufirði var kjörinn formaður stjórnar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi á aðalfundi samtakanna í dag, föstudaginn 29. maí. Tveir voru í framboði, Ólafur og Ægir Páll Friðbertsson framkvæmdastjóri hjá Brim hf. Ólafur fékk 49,99% atkvæða en Ægir Páll 49,05%. Ólafur tekur við formennsku af Jens Garðari Helgasyni, sem verið hefur formaður samtakanna frá stofnun árið 2014. En samkvæmt samþykktum samtakanna, má hver stjórnarmaður að hámarki vera sex samfelld ár í stjórn.
Á myndinni eru Jens Garðar Helgason til vinstri og Ólafur Marteinsson til hægri