Ónotuð aðalvél í kaupbæti

120
Deila:

Skip Bergs-Hugins, Bergey VE og Smáey VE (áður Vestmannaey VE), hafa nýlega verið seld og þau leyst af hólmi af nýjum skipum. Bergey fékk nafnið Runólfur og var seld til Guðmundar Runólfssonar hf. í Grundarfirði, en Smáey fékk nafnið Sturla og var seld til Þorbjarnar hf. í Grindavík. Bæði þessi skip voru smíðuð í Póllandi árið 2007.

Ýmislegt fylgir skipum þegar þau eru seld og eru það helst „manualar“ og varahlutir af ýmsum toga. Það er þó mismunandi mikið sem fylgir skipunum og fyrir liggur að óvenju mikið fylgir Sturlu. Um þessar mundir er verið að pakka niður öllum fylgihlutunum með Sturlu og senda þá til Grindavíkur. Guðmundur Alfreðsson, útgerðarstjóri Bergs-Hugins, er önnum kafinn við það verk og hafði heimasíðan samband við hann.

„Nú er lokið við að taka saman allt sem fylgir Sturlu til Grindavíkur og það er sannast sagna ekkert smáræði. Stærsti hluturinn er heil ónotuð aðalvél í skipið sem samið var um að fylgdi því. Það er óneitanlega óvenjulegt að aðalvél fylgi skipi þegar það er selt og kannski er það einsdæmi. Að auki fá Grindvíkingarnir mikið af varahlutum í vélbúnað ásamt miklum bunka af „manuölum“. Runólfi fylgdi einnig mikill búnaður eins og til dæmis skrúfublöð og tveir afgasblásarar. Staðreyndin er sú að við hjá Bergi-Hugin lögðum áherslu á að eiga alla varahluti svo skipin tefðust sem minnst frá veiðum ef eitthvað bilaði og því er svona mikið til sem nýir eigendur skipanna njóta góðs af,“ segir Guðmundur í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Margvíslegur búnaður og varahlutir fóru bæði til Grindavíkur og Grundarfjarðar.
Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Mikill bunki af „manuölum“ fylgir skipunum.
Ljósm. Guðmundur Alfreðsson.

 

Deila: