Ráðið í nýjar stöður hjá SVN

250
Deila:

Snemma í sumar auglýsti Síldarvinnslan tvær stöður  lausar til umsóknar. Annars vegar var um að ræða stöðu rekstrarstjóra útgerðar og hins vegar stöðu rekstrarstjóra uppsjávarfrystingar.  Fjölmargar umsóknir bárust um bæði störfin og hefur nú verið valið úr þeim. Vill fyrirtækið koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem sýndu störfunum áhuga og skiluðu inn umsóknum.

Í stöðu rekstrarstjóra útgerðar var ráðinn Grétar Örn Sigfinnsson. Grétar er skipa- og véltæknifræðingur að mennt en hann hefur síðustu árin stýrt viðhaldsmálum í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Hann hefur mikla reynslu af viðhaldsmálum í sjávarútvegi og hefur einnig starfað á þeim vettvangi hjá Alcoa Fjarðaáli, Mannviti, Bechtel og fleiri fyrirtækjum. Grétar mun taka við starfi rekstrarstjóra útgerðar af Karli Jóhanni Birgissyni sem lætur af störfum á haustmánuðum eftir langt og afar farsælt starf hjá fyrirtækinu.

Til að stýra viðhaldsmálum í fiskiðjuverinu hefur verið ráðinn Ívar Dan Arnarson. Ívar er vélstjóri og rafvirki að mennt og hefur hann starfað að viðhaldsmálum í fiskiðjuverinu sl. þrjú ár. Áður gegndi Ívar starfi vélstjóra á Bjarti NK og Barða NK og starfaði sem vélvirki hjá Launafli á Reyðarfirði sem annast viðhaldsverkefni í álveri Alcoa Fjarðaáls.

Í stöðu rekstrarstjóra uppsjávarfrystingar var ráðinn Geir Sigurpáll Hlöðversson. Geir Sigurpáll er verkfræðingur að mennt og hefur mikla reynslu af iðnaði, en hann starfaði hjá Alcoa-Fjarðaáli frá upphafi og fram á síðasta ár. Síðustu fimm árin hjá Alcoa Fjarðaáli gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra málmsteypu, en var áður framkvæmdastjóri umhverfis-, heilsu- og öryggismála. Mun reynsla Geir Sigurpáls nýtast afar vel við rekstur fiskiðjuversins sem verður sífellt tæknivæddara og þar sem ávallt eru gerðar meiri kröfur um öryggi starfsfólks og gæði afurða. Staða rekstrarstjóra uppsjávarfrystingar er ný af nálinni og mun sá sem henni gegnir sinna fjölþættum verkefnum sem tengjast áframhaldandi framþróun vinnslunnar.

Þá hefur Hafþór Eiríksson verið ráðinn í stöðu rekstrarstjóra fiskimjölsverksmiðja. Hafþór er vél- og orkutæknifræðingur að mennt og hefur gegnt starfi verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðjunnar í Neskaupstað frá árinu 2016. Áður starfaði Hafþór sem viðhaldssérfræðingur hjá Alcoa Fjarðaáli. Hafþór tekur við starfinu af Gunnari Sverrissyni sem hefur sinnt  því frá árinu 2012 ásamt því að gegna starfi verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðjunnar á Seyðisfirði.

Gunnar lét af störfum 1. júlí sl. eftir að hafa starfað við fiskimjölsiðnaðinn í 47 ár. Gunnar hóf störf hjá Síldarverksmiðjum ríkisins árið 1973 og starfaði síðan hjá SR-mjöli. Hann hóf störf á Seyðisfirði árið 1982. Fáir eða engir hafa jafn mikla reynslu af störfum við fiskimjölsiðnaðinn og Gunnar og hefur Síldarvinnslan verið afar heppin að fá að njóta starfskrafta hans. Við starfi Gunnars sem verksmiðjustjóri á Seyðisfirði tekur Eggert Ólafur Einarsson. Eggert er meistari í járniðnum og gegndi áður starfi verksmiðjustjóra fiskimjölsverksmiðjunnar í Helguvík frá árinu 1998.

Deila: