Ráðstefna um plast í Norðurhöfum

201
Deila:

Alþjóðleg plastráðstefna “Plastics in the Arctic” hefst í dag og stendur yfir dagana 2.-4. og 8.-9. mars. Hafrannsóknastofnun er í skipulagsnefnd ráðstefnu ásamt utanríkisráðuneytinu, umhverfis- og auðlindaráðuneytinu og Norðurskautsráðinu. Dagskráin er metnaðarfull með áhugaverðum fyrirlestrum, hringborðsumræðum og veggspjöldum.

Dagskrá á málstofum ráðstefnu:

– Uppruni plasts á norðurslóðum.
– Áskoranir á norðurslóðum í tengslum við losun úrgangs.
– Aðferðafræði við rannsóknir á stórum plastögnum sem og örplasti.
– Vöktun á plasti í Norðurhöfum, skilgreiningar á grunnviðmiðunum.
– Áhrif plastmengunar á norðurslóðum, eiturefnavistfræði og þjóðhagslegir þættir
– Kynning á NorMar rannsóknarverkefninu þar sem m.a. er fjallað um alþjóðlega staðla hvað varðar skilgreiningar, aðferðafræði og greiningar.
– Lausn plastvanda, bestu leiðir á heimsvísu til þess að draga úr plastógninni.
– Aðgerðaáætlun um hvernig unnt er að vinna á plastvandanum, samhæfðar aðgerðir í samvinnu við iðnfyrirtæki
– Lokaumræður áhrifamanna í stjórnmálum um næstu skref.

Á eftirfarandi hlekk er hægt að skrá sig á ráðstefnuna: www.arcticplastics2020.is

Almennt ráðstefnugjald er: 17500 kr. og 10000 kr. fyrir nema.

 

Deila: