Rekstrarleyfi til fiskeldis að Sigtúni í Öxarfirði gefið út

164
Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Samherja fiskeldi ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Sigtúni í Öxarfirði, í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vefsíðu stofnunarinnar þann 20. maí 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 20. júní 2020.

Samherji fiskeldi sótti um rekstrarleyfi fyrir 11 tonna matfiskeldi á bleikju að Sigtúni í Öxarfirði. Umsókn um rekstrarleyfið var móttekin 28. nóvember 2017. Úttekt starfsstöðva hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Samherja fiskeldis FE-1143 að Sigtúnum í Öxarfirði en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins er ekki matsskyld skv. ákvörðun Skipulagsstofnunar í samræmi við lög um mat á umhverfisáhrifum.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

 

Deila: