Reynt við makríl eitthvað áfram

Deila:

,,Ég á von á að komast úr seint í kvöld eða nótt og það verður áfram haldið að reyna við makrílinn. Síldin býður betri tíma en mér skilst þó að Venus NS muni eitthvað kíkja á síld á heimleiðinni, næst þegar skipið kemur inn,“ sagði Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK, er rætt var við hann á Vopnafirði í gær á heimasíðu Brims..

Hjalti Einarsson var skipstjóri á Víkingi í síðustu veiðiferð en skipið kom til Vopnafjarðar með um 770 tonna afla á miðvikudagsmorgun.

,,Það var rólegt yfir veiðinni og greinilegt að það er að draga úr makrílgengdinni í Síldarsmugunni. Þá er veðráttan að versna og meira um kaldafýlur en í sumar. Þetta gerir alla leit erfiðari. Makríllinn virðist nú halda sig á litlum blettum mjög víða og er fljótur að veiðast upp. Það er ekkert greinilegt göngumynstur á makrílnum og veiðin getur stundum komið upp á ólíklegustu stöðum,“ segir Hjalti og Albert tekur undir með honum.

,,Á tímabili virtist makríllinn hreinlega hringsóla á stóru hafsvæði. Það er vafalaust ætið sem veldur því hvert makríllinn stefnir hverju sinni. Það getur snögglega komið upp veiði nyrst í Síldarsmugunni á sama tíma og veiðin er góð syðst,“ segir Albert Sveinsson.

Makríllinn sem veiðst hefur í sumar og haust er stór og hentar vel til vinnslu. Meðalvigtin hefur aðeins lækkað eftir því sem liðið hefur á haustið en í þessari síðustu veiðiferð Víkings var hún um 450-460 grömm.

 

 

Deila: