Rólegt á kolmunnaveiðunum

Deila:

,,Það er mjög rólegt yfir kolmunnaveiðunum núna. Það er ekki hægt að segja að það komi okkur beinlínis á óvart en menn voru að vona að hin góða veiði héldist eitthvað áfram,“ sagði Albert Sveinsson, skipstjóri á Víkingi AK, er rætt var við hann síðdegis í gær af heimasíðu HB Granda.

Er tal náðist af Alberti var Víkingur að toga sunnarlega í hinu svokallaða Ræsi rúmar 50 mílur suðvestur af Færeyjum. Skipið var þá búið að vera í tæpa viku á miðunum og heildaraflinn var kominn í rúmlega 2.100 tonn.

,,Við höfum verið að toga lengi eða upp í einn sólarhring og við höfum verið að hífa um 300 tonn eftir þann tíma. Aflinn er reyndar minni í dag en við höldum í vonina. Kolmunninn er mjög dreifður og það er erfitt að eiga við hann fyrr en hann þéttir sig,“ segir Albert.

Að sögn Alberts hefur ekkert heyrst af veiði suður undir alþjóðlega hafsvæðinu og svo virðist sem að kolmunninn sé genginn norðar.

,,Það var norskt skip sem leitaði að kolmunna þarna suður frá en fann ekkert. Hann kom hingað í gær og er nú að toga norður Ræsið.“

Þrjú íslensk skip eru nú á veiðisvæðinu. Auk Víkings eru þar Venus NS og Aðalsteinn Jónsson SU og Jón Kjartansson SU er á leiðinni. Að auki eru þarna nokkur fjöldi skipa, aðallega frá Rússlandi og Færeyjum.

,,Venus er til þess að gera nýkominn og er nú á sínu öðru holi. Okkur vantar gott hol til að klára túrinn og við ættum svo að ná einum túr til viðbótar fyrir sjómannadaginn,“ segir Albert Sveinsson.

 

 

Deila: