Sama stóra og fallega síldin

174
Deila:

Beitir NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með 790 tonn af síld og er verið að vinna hana í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Sturla Þórðarson skipstjóri segir að síldin hafi fengist í Seyðisfjarðardýpinu. „Við fengum þetta 46 mílur frá höfninni hérna og það var töluvert af síld að sjá. Þetta er sama stóra og fallega síldin, meðalþyngdin 390-400 grömm. Síldin heldur sig bara á sömu slóðum og hún hefur verið á í allt haust en nú er síldarvertíðin á lokametrunum hjá okkur,“ segir Sturla í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu, tekur undir með Sturlu og segir að síldin sé stór og falleg. „Þessi síld getur í rauninni ekki verið betri og vinnsla á henni gengur afar vel. Hún er heilfryst og svo er hún einnig flökuð og fryst með roði og án roðs. Öll vertíðin hefur gengið eins og í sögu hjá okkur, en nú er að koma að lokum hennar. Þetta hefur verið algjör veisla, það verður ekki annað sagt,“ segir Jón Gunnar.
Ljósmynd Helgi Freyr Ólason

 

Deila: