Sameiginlegt eftirlit með netaveiði á göngusilungi í sjó

95
Deila:

Fiskistofa var ásamt Landhelgisgæslunni við eftirlitsflug fyrir helgi sem beindist að því að kanna netalagnir vegna veiði á göngusilungi í sjó. Samstarf við Landhelgisgæsluna er afar gagnlegt fyrir Fiskistofu en með eftirlitsflugi er hægt að komast yfir stórt svæði á skömmum tíma.

Beindist eftirlitið að Vesturlandi, Ísafjarðardjúpi, Húnaflóa og Skagafirði. Fiskistofa mun áfram leitast við að eiga gott samstarfi við Landhelgisgæsluna vegna eftirlits með netaveiði á göngusilungi í sjó við Ísland, eins og verið hefur undanfarin ár.

Eftirlit Fiskstofu með netaveiði á göngusilungi í sjó miðar að því að athuga hvort veiðar séu stundaðar í samræmi við 15. gr. laga nr. 61/2006 um lax- og silungsveiði  og ákvæði í reglugerð nr. 449/2013  um búnað og frágang neta vegna veiða göngusilungs í sjó.

 

Deila: