Samherji hefur aldrei greitt namibíska stjórnmálaflokknum Swapo fjármuni

90
Deila:

Forstjóri Samherja segir fyrirtækið aldrei hafa greitt namibíska stjórnarflokknum Swapo fjármuni. Fullyrt er í namibískum fjölmiðlum að fyrirtækið hafi gert það árið 2017. Hage Geingob forseti Namibíu boðaði til blaðamannafundar í gær þar sem hann sór af sér ásakanir þess efnis að flokkur hans hefði þegið styrki frá fyrirtækjum sem tengjast Samherjamálinu svokallaða. Sex fyrrverandi ráðherrar og einstaklingar í Namibíu eru grunaðir um fjársvik og mútuþægni. Samherji hefur verið sakaður um að greiða mútur til að komast yfir kvóta í Afríkulandinu. frá þessu er greint á visir.is

Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra landsins og tengdasonur hans vilja losna úr varðhaldi gegn tryggingu. Dómstólar hafa tekið beiðni þeirra fyrir. Við réttarhöldin fullyrti namibískur rannsakandi að rannsókn málsins hefði leitt í ljós að meintar mútugreiðslur Samherja hefðu meðal annars fjármagnað kosningabaráttu Swapo.

Forseti Namibíu sagði þetta ekki rétt. Flokkurinn hefði aldrei fengið beinan styrk frá fyrirtækjum tengdum Samherja.

Namibíska dagblaðið The Nambian fullyrðir hins vegar í dag að flokkurinn hafi sannarlega fengið beina styrki frá dótturfélagi Samherja árið 2017. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Samherja, segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að Samherji hafi aldrei greitt Swapo-flokknum fjármuni, hvorki beint né í gegnum milliliði.

„Samherji hefur aldrei greitt Swapo-flokknum neina fjármuni, hvorki beint né í gegnum millilið. Þessi frétt The Namibian er því röng,“ segir í svari Björgólfs.

Deila: