Samstarfsyfirlýsing um sjávarútvegs- og fiskeldismál undirrituð

Deila:

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra, og T. Armstrong Changsan, sendiherra Indlands á Íslandi, hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um sjávarútvegs- og fiskeldismál.

Markmið yfirlýsingarinnar er að efla samstarf og samvinnu á sviði rannsóknar og þróunar í sjávarútvegsmálum, þá sérstaklega að ýta undir samstarf íslenskra og indverskra fyrirtækja á þessum vettvangi. Í samstarfsyfirlýsingunni er vikið að mikilvægi fiskveiðistjórnunnar, sjálfbærra veiða og umhverfissjónarmiða sem og fullnýtingu afurða og hámörkun verðmæta þeirra.

„Í þessu samstarfi geta falist mikilvæg tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til að hasla sér völl á þeim sístækkandi markaði sem Indland er. Um leið er þetta tækifæri til að miðla af reynslu Íslendinga þegar að kemur að hagkvæmri fiskveiðistjórnun, sjálfbærum veiðum og fullnýtingu afurða,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra:

 

 

Deila: