Sátu námskeið um Catsat-kerfið

Deila:

Skipstjórnarmenn á uppsjávarskipum Síldarvinnslunnar, Loðnuvinnslunnar og Samherja komu saman í byrjun vikunnar á fræðslunámskeiði í Neskaupstað. Á námskeiðinu var fjallað um hið svonefnda Catsat upplýsingakerfi en kerfið veitir fjölþættar upplýsingar um skilyrði í hafinu og aflar þeirra meðal annars með gervihnöttum og sérstökum mælibaujum sem finna má í öllum heimsins höfum. Einkum var fjallað um upplýsingar sem kerfið veitir og geta komið að gagni við makrílveiðar. Leiðbeinandinn á námskeiðinu var Spánverjinn Igor Sancristobal, en hann er aðalhaffræðingur hafrannsóknastofnunarinnar CLS, sem vinnur að hafrannsóknum um heim allan og hefur meðal annars þróað Catsat kerfið. Frá þessu er greint á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Ragnar Harðarson framkvæmdastjóri Akor og Igor Sancristobal haffræðingur. Ljósm. Smári Geirsson.

Það er íslenska fyrirtækið Akor ehf sem er sölu- og þjónustuaðili fyrir Catsat í okkar heimshluta en Akor annast reyndar markaðssetningu á kerfinu í norður- og austanverðri Evrópu og einnig í vestanverðri Afríku. Ragnar Harðarson framkvæmdastjóri Akor var á námskeiðinu í Neskaupstað og sagði að það væri einkar mikilvægt fyrir þá sem selja og þjónusta kerfið að fá tækifæri til að hitta skipstjórnarmenn sem nota það.

Einn þeirra sem sótti námskeiðið á þriðjudag var Tómas Kárason skipstjóri á Beiti NK. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við hann og spurði fyrst hve lengi Síldarvinnsluskipin hefðu notað Catsat kerfið. „Við erum búnir að nota þetta kerfi í ein átta ár og það veitir okkur margvíslegar upplýsingar um nánast hvað sem er í sjónum. Í gegnum kerfið fáum við til dæmis upplýsingar um strauma, hitastig, hæðir og lægðir í sjónum, átumagn og fleira. Þetta er komið í allmörg íslensk skip og reynslan virðist almennt vera góð. Nú er komin afladagbók inn í kerfið og hún gefur okkur kost á að skoða hvernig aðstæður í sjónum hafa áhrif á veiðar. Ef þú ert að fiska vel við ákveðnar aðstæður þá gerir kerfið þér kleift að leita á ný að sambærilegum aðstæðum í hafinu. Nú er ætlunin að bjóða upp á þá þjónustu hjá kerfinu að setja upp líklega staði fyrir veiðar á makríl og það væri gaman að taka þátt í að þróa hana. Ég hef þá trú að menn munu smátt og smátt auka notkunina á Catsat kerfinu því það er í alla staði athyglisvert. Þá skemmir ekki fyrir að fá góða fræðslu um kerfið og njóta góðrar þjónustu við það,“ segir Tómas.

Deila: