Síldarvinnslan framúrskarandi enn og aftur

87
Deila:

Creditinfo hefur nú tilkynnt hvaða fyrirtæki á Íslandi töldust framúrskarandi á rekstrarárinu 2019 samkvæmt þeim viðmiðum sem stuðst er við, en Creditinfo hefur unnið lista um framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2010. Fyrir árið 2019 komust einungis um 2% fyrirtækja á umræddan lista.

Á listanum yfir framúrskarandi fyrirtæki er þeim skipt í þrjá stærðarflokka; lítil fyrirtæki, meðalstór og stór. Síldarvinnslan er í flokki stórra fyrirtækja og er þar í sjötta sæti. Fram kemur á listanum að eignir Síldarvinnslunnar séu 64.3 milljarðar króna og eigið fé 43.7 milljarðar króna eða 67,9%.

Síldarvinnslan hefur verið á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki samfellt frá árinu 2012 og hefur verið að færast upp listann á síðustu árum.

Þegar fyrirtæki á listanum eru skoðuð eftir landshlutum kemur fram að 32 fyrirtæki á Austurlandi eru framúrskarandi og þar er Síldarvinnslan í fyrsta sæti.

 

Deila: