Sjávarafurðir 35% alls vöruútflutnings

Deila:

Sjávarafurðir voru 35% alls vöruútflutnings síðustu 12 mánuði en verðmæti þeirra jókst um 5,8% í samanburði við fyrra 12 mánaða tímabil. Verðmæti útflutnings á eldisfiski jókst um 3,7 milljarða á milli 12 mánaða tímabila, eða um 10,4%, og er nú 4% af heildarútflutningsverðmæti á síðustu 12 mánuðum.

Verðmæti vöruútflutnings í júlí 2022 jókst um 7,6 milljarða króna, eða um 11,2%, frá júlí 2021, úr 68,1 milljarði króna í 75,8 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 7,0 milljarða króna eða 16,5% samanborið við júlí 2021.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili frá ágúst 2021 til júlí 2022 var 904,6 milljarðar króna og jókst um 205,3 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 29,4% á gengi hvors árs. Iðnaðarvörur voru 57% alls vöruútflutnings síðustu 12 mánuði og jókst verðmæti þeirra um 53,9% frá fyrra 12 mánaða tímabili.

 

Deila: