Sjávarútvegsskólinn kominn með nema eftir árs hlé

142
Deila:

Gró Sjávarútvegsskóli sem starfar undir hatti UNESCO hefur fengið nema að nýju eftir árs hlé vegna Covid19. Þetta er stærsti hópur sem komið hefur á vegum skólans og eru nemarnir víðs vegar að og koma frá 17 löndum.

Þriðjudaginn 14. september var hefðbundinn dagur brotinn upp og farin vettvangsferð í Tilraunaeldisstöðina að Stað við Grindavík þar sem starfsmenn stöðvarinnar, þeir Matthías, Agnar og Tómas tóku á móti hópnum og kynntu fyrir honum starfsemina. Stöðin vakti mikinn áhuga og útskýrðu starfsmennirnir hin ýmsu verkefni sem þar eru unnin. Fólkið var mjög áhugasamt og spurði mikið út í starfsemina.

Auk starfsmanna Sjávarútvegsskólans, þeirra Stefáns, Agnesar og Zaw var Haraldur Einarsson veiðarfærasérfræðingur með í för og leiddi fólk í allan sannleika um ólík veiðarfæri og virkni þeirra við netaverkstæðið í Grindavík.

Saltfisksetrið í Grindavík var einnig skoðað og farið lauslega yfir sögu og þróun fiskveiða á Íslandi. Að lokum var gengið að hrauninu í Nátthaga.

Nemar og starfsmenn komu til baka, glaðir og ýmsu vísari.

Haraldur Einarsson kynnir veiðarfæri fyrir nemunum í Grindavík. Hópurinn stendur hér við steinastiklu (rock hopper)
Deila: