Sjávarútvegssýningin stækkar í Laugardalshöll

Deila:

Sjávarútvegssýningin Sjávarútvegur 2019/ Iceland Fishing Expo 2019 verður haldin í Laugardalshöll í haust. Að sögn Ólafs M. Jóhannessonar framkvæmdastjóra sýningarinnar hefur sýningin stækkað umtalsvert frá síðustu sýningu 2016 og mun hún nú fylla alla sali Hallarinnar :

„Sýningin hefur vaxið töluvert og mikil eftirspurn hefur verið eftir sýningarsvæðum bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Það er ánægjulegt að sjá hversu fjölþætt sú þjónusta er sem íslenskur sjávarútvegur býr yfir. Á sýningunni verður að finna bæði stór og smá fyrirtæki er þjóna sjávarútveginum  og sýna allt það nýjasta á þessu sviði.

Ég hef alltaf haft sterkar taugar til sjávarútvegsins enda hefur hann fleytt okkur í gegnum boðaföll alls kyns kreppa og áfalla í gegnum áratugi. Sjávarútvegurinn er að þróast í átt til hátækniiðnaðar sem má sjá í fjölbreytni fyrirtækjanna sem taka þátt í sýningunni. Tilgangur sýningarinnar er að veita   fagaðilum og áhugafólki tækifæri til að kynnast þróun og nýjungum í sjávarútvegi. Þessar jákvæðu tæknibreytingar  skipta miklu fyrir velferð íslensks samfélags.

Við opnun sýningarinnar verða veittar viðurkenningar til þeirra er hafa skarað fram úr á árinu. Þarna hefur fjölbreyttur hópur innan sjávarútvegsgeirans tækifæri til að hittast en almenningur á einnig fullt erindi á sýninguna.“

Sjávarútvegssýningin 2019 hefst miðvikudaginn 25. september og lýkur föstudaginn 27. september.

 

 

 

 

 

 

 

Deila: